Röðull
Röðull, hrossarækt og sala.
Á Röðli hefur verið stunduð hrossarækt og -sala um nokkurra áratuga skeið. Þar hefur verið lögð áhersla á ræktun góðra og notadrjúgra reiðhesta til að henta sem flestum jafnt börnum sem keppnisfólki. Við leggjum mikla áherslu á geðgóð og greind hross, sem eru mannelsk, námsfús og auðvelt að vinna með.
Upphaflega ræktunin er byggð á hrossum frá Eríksstöðum í Svartárdal, sem eru þekkt frá árum áður. Inn í ræktunina komu svo stofnar eins og frá Gáska frá Hofsstöðum, Eiðfaxa frá Stykkishólmi , Draumi frá Hóli og Þresti frá Kirkjubæ, Náttfara frá Ytra-Dalsgerði ofl.
Aðalmarkaður okkar hefur hingað til verið Þýskaland enda höfum við haft góð sambönd þangað og traustan markað í samvinnu við Christiane Rochlitz vinkonu okkar þar. Hún er höfundur þýsku sölusíðu okkar: www.roedull.de , margra af söluljósmyndum okkar og einnig hannaði hún einkennismerki okkar, sem sést hér að neðan.
Jörðin Röðull er í Húnavatnshreppi, Austur Húnavatnssýslu, rétt utan við Blönduós. Röðull er nýbýli úr landi Sauðaness og hófst þar búskapur upp úr 1950 og hefur Haukur Pálsson búið þar frá upphafi.
Upp úr 1980 tók hrossabúskapurinn nær alveg yfir, kúabúskap lauk og sauðfé var mikið fækkað. Þar sem mikið hrossastóð þarf mikla beit höfum við auk Röðuls einnig jarðirnar Björnólfsstaði, Ysta-Gil og Strjúgsstaði í Langadal, enda veitir ekki af. Afrétturinn okkar er svo Laxárdalur, en þangað rekum við stóðið í lok júlí og smölum niður í Skrapatungurétt í lok September.
Á þessari heimasíðu getið þið fundið upplýsingar um þau hross, sem við höfum til sölu í hvert sinn. Einnig fréttir af okkar daglega lífi, viðburðum sem varða hrossin og okkur sjálf og ýmislegt annað.
Við, sem að þessari ræktun stöndum erum : Haukur og Guðlaug, en nánari upplýsingar um okkur færðu með því að smella áUm okkur efst á forsíðunni.
